Kvikmyndir og kosningar — hvað eiga þær sameiginlegt?
Ekkert annað en að stundum voru kvikmyndasýningar á skemmtunum flokkanna hér í bænum og svo finnst sitthvað smálegt um hvoru tveggja á Skjalasafninu.
Á 1. og 2. hæð Gamlasjúkrahússins getur nú að líta auglýsingar um bíó og kosningar/stjórnmálafundi auk þess sem rifja má upp ýmsar bíómyndir sem sýndar voru hér fyrr á tíð með því að skoða prógröm.
Sýningin er opin á opnunartíma hússins, virka daga frá kl. 13-19 og laugardaga frá kl 13-16.
|
|
19. maí 2010 | 03:52:22
|
|
Bókaverðlaun barnanna 2010
|
| |
|
|
Katrín Ósk Einarsdóttir og Hafsteinn Már Sigurðsson |
Börn á aldrinum 6-12 ára í almennings- og skólasöfnum landsins velja vinsælustu bækur sem voru gefnar út 2009, bæði þýddar og frumsamdar. Bækurnar sem urðu fyrir valinu að þessu sinni voru Núll núll 9 eftir Þorgrím Þráinsson og Stórskemmtilega stelpubókin eftir eftir Andrea J. Buchanan í þýðingu Höllu Sverrisdóttur. Bóksafnið á Ísafirði dró út tvenn bókaverðlaun fyrir þátttakendur á Ísafirði, og voru það þau Hafsteinn Már Sigurðsson og Katrín Ósk Einarsdóttir sem hlutu verðlaunin.
|
|