Bangsavefur -> Um bókasöfn og bangsadaginn

Bókasöfn og bangsar

Síðan 1998 hafa bókasöfn á Norðurlöndum haldið Bangsadaginn hátíðlegan. Það er einkar viðeigandi að tengja bangsa og bókasöfn á þennan hátt því bangsar eru söguhetjur margra vinsælla barnabóka. Auk þess eru bangsar eitt vinsælasta leikfang sem framleitt hefur verið og flestir eiga góðar minningar tengdar uppáhalds bangsanum sínum. Einnig eru bangsar tákn öryggis og vellíðunar í huga okkar á sama hátt og bækur og bókasöfn eru vonandi.

Fyrsti bangsinn

Dagurinn sem bangsavinir hafa valið sér er 27. október, afmælisdagur Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta.

Roosevelt var mikill skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á bjarnarveiðum hafi hann vorkennt litlum, varnarlausum bjarnarhúni og sleppt honum lausum. Washington Post birti skopmynd af þessu atviki sem vakti mikla athygli.

Búðareigandi einn í Brooklyn, New York varð svo hrifinn af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann seldi sem "Bangsann hans Teddy" (Teddy's Bear). Á myndinni til hliðar má sjá fyrsta bangann sem framleiddur var, en hann er varðveittur í Smithsonian safninu í Bandaríkjunum. Það má segja að þetta hafi verið upphaf af sigurgöngu leikfangabangsans sem er orðinn vinsæll félagi barna (og fullorðinna) um allan heim.

Hér til hliðar má sjá skopmyndina sem varð kveikjan að bangsaæðinu. Hún er eftir Clifford K. Berryman og heitir Drawing the line in Mississippi. Það er athyglisvert hvernig Berryman teiknar bjarnarhúninn og því hann líkist meira seinni tíma leikfangaböngsum heldur en alvöru bjarndýri.

Fyrsti bangsinn
Fyrsti bangsinn sem framleiddur var.

Skopmyndin
Skopmynd sem sýnir veiðiferð Teddy Roosevelt.

Á upphafssíðu - Öllum er frjálst að nota þennann texta sé heimildar getið.