Bangsar hafa lengi verið í miklu eftirlæti hjá barnabókahöfundum, íslenskum jafnt og erlendum. Vinsældir þeirra stafa eflaust af vingjarnlegu og hlýlegu útliti auk þess sem flestum börnum (og kannski einhverjum fullorðnum) finnst gott að kúra með leikfangabangsann sinn.
![]() |
Harðspjaldabækur um Bóbó bangsa og vini hans.
|
![]() |
Nokkrar útgáfur af ævintýrinu um Gullbrá og birnina þrjá eru til á íslensku, t.d. harðspjaldaútgáfa með glitrandi myndum frá 2005. |
![]() |
|
![]() |
Söguhetjur þessara bóka eru Bessi, Benni, Bogga og Bagga bangsabörn sem lenda í ýmsum ævintýrum og kynnast allskonar dýrum.
|
![]() |
Paddington fæddist í Perú en var sendur einsamall til London og var ráfandi um Paddington
lestarstöðina þegar Brown-fjölskyldan rakst á hann og tók hann í fóstur.
Auk þessara þriggja bóka hafa verið gefnar út margar litlar myndabækur um Paddington.
Höfundur:Michael Bond |
![]() |
Bækurnar fjalla um litla ísbjörninn sem lendir í mörgum ævintýrum og kynnist mörgum nýjum vinum. Alltaf verður hann þó jafn feginn þegar hann kemur heim til ísbjarnamömmu og
ísbjarnapabba.
Höfundur: Hans de Beer |
![]() |
Bækurnar um litla pandabjörninn sem kann ýmislegt fyrir sér eru ætlaðar yngstu lesendunum.
Höfundur: Oda Taro |
![]() |
Búddi Bangsabarn tekur upp á ýmsu og er duglegur að koma sér í vandræði. Höfundurinn hlaut æðstu barnabókaverðlaun Frakklands fyrir bækur sínar.
|
![]() |
Rasmus er skemmtilegur og fjörugur björn. Það sem honum finnst skemmtilegast er að lenda í
ævintýrum með vinum sínum Pingó, Pela, Skegg og öllum hinum. Rasmus er líka mikill sælkeri.
Honum þykir plokkfiskur, hafragrautur og hunang góður matur, en það besta sem hann fær eru
hnausþykkar pönnukökur með jarðarberjasultu.
Höfundur: Carla Hansen |
![]() |
Litli bangsi týnir besta vini sínum, Stóra bangsa. Hann reynir mikið að finna nýja vini og leggur ýmislegt á sig til að þóknast þeim. Er það rétta leiðin?
Höfundur: Illugi Jökulsson |
![]() |
Bækurnar um Litla Björn og vin hans Stóra Björn.
|
![]() |
Grábirnir, ísbirnir og pandabirnir. Allt um alvöru bangsa!
|
|
Bangsi læknir (1956) eftir Herdísi Egilsdóttur
Litli skógarbjörninn (1992) eftir Illuga Jökulsson
Þegar leikföngin lifnuðu við (1988) eftir Enid Blyton.
Bangsi á afmæli (1989) eftir Enid Blyton.
Bangsi gamli (1987) eftir Jane Hissey.
Bangsi litli (1957, 1979, 1984 og 2000) eftir Grete Janus og Mogens Hertz.
Lilli klifurmús og hin dýrin í Hálsaskógi (1978 og 1992) eftir Thorbjörn Egner.
Svona er að vera ísbjarnarhúnn (1999) eftir Honor Head. Auk þess er til fjöldi annarra bóka og sagna þar sem bangsar koma við sögu t.d. "Bókin með augun" sem eflaust hefur þótt nýstárleg þegar hún kom út 1956, enda með hreyfanleg auga sem lýsa í myrkri! |