Isafjordur Public Library, Art collection, Photo collection, Archives, Culture House Eyrartuni
      - Myndir
English
 
 
 
 
 
Gamlasjúkrahúsið
Pósthólf 138 • 400 Ísafjörður
kt. 540596-2639
Sími: 450 8220 • Fax: 450 8229
bokasafn@isafjordur.is
myndasafn@isafjordur.is
skjalasafn@isafjordur.is
listasafn@isafjordur.is

Listasafn Ísafjarðar

Minningarsjóður um tvo vestfirska bræður er stofninn að Listasafni Ísafjarðar. Þeir voru Rögnvaldur Ágúst Ólafsson, hinn þjóðkunni húsameistari, sem dó liðlega fertugur árið 1917, og Jón Þorkell Ólafsson, trésmíðameistari og húsasmiður á Ísafirði, sem lést nærri hálfáttræður árið 1953. Sjóðurinn var dánargjöf Elínar Sigríðar Halldórsdóttur, ekkju Jóns Þorkels. Með erfðaskrá gaf hún nær allar eignir sínar til menningarmála á Ísafirði. Listasafn Ísafjarðar stofnað hinn 12. febrúar 1963.

Fyrsta sýning á verkum safnsins var haldin sumarið 1966 í tilefni aldarafmælis bæjarstjórnar á Ísafirði.

Listaverk í eigu safnsins eru víða í opinberum byggingum í Ísafjarðarbæ.

Stjórn Listasafns Ísafjarðar skipa jafnan bæjarstjóri, bæjarfógeti og sóknarprestur á Ísafirði, svo og einn af ættingjum bræðranna.

Safnið er opið á opnunartímum safnahússins.

 
© Bókasafnið - Netheimar - Snerpa