Ný heimasíða Byggðasafns Vestfjarða
Neðst á Skutulsfjarðareyri, í Neðstakaupstað, stendur elsta húsaþyrping landsins. Þetta eru fjögur hús sem öll voru byggð af dönskum einokunarkaupmönnum á 18. öld. Í yngsta húsinu, Turnhúsi, hefur Byggðasafn Vestfjarða sett upp sýningu á sjóminjum þar sem sjá má fjölda gripa sem tengjast fiskveiðum og vinnslu frá öndverðu til okkar daga. Utan við safnið eru geymdir nokkrir bátar og þar er einnig fiskreitur þar sem saltfiskur er sólþurrkaður með gamla laginu. Einnig kemur safnið að sýningum með lánshlutum og öðrum hætti víða um héraðið.
Safnvísir