|
BÆJAR- OG HÉRAÐSBÓKASAFNIÐ
HÉRAÐSSKJALASAFNIÐ
LJÓSMYNDASAFNIÐ
ÍSAFIRÐI
Ársskýrslur
ÁRSSKÝRSLA 2007
Almennt:
Útlán voru um 35.000 og gestafjöldi
hér á Ísafirði rúmlega 40.000 sem er um 14,2% meira en s.l. ár. Nokkur
samdráttur var í útlánum til stofnana og útlánum safnanna á Þingeyri,
Flateyri og Suðureyri. Enn er vaxandi þjónusta við fjarnema í héraðinu og
brýn þörf á að bæta aðstöðu hér á safninu fyrir framhaldsnema sérstaklega í
greinum sem nýta gögn safnanna.
Alls voru 12 sýningar og atburðir á
vegum safnanna á árinu og gestir um 700.
Nú eru 9 (9) tölvur tengdar netinu
fyrir almenning, auk þess sem hægt er að tengja fartölvur gesta við netið með
örbylgjloftneti innanhúss (hotspot).
S.l. sumar var sá háttur hafður á að
opna safnið sérstaklega (utan venjulegs afgreiðslutíma) t.d. á sunnudögum
þegar ferðamannastraumur er mestur í bænum s.s. við komur skemmtiferðaskipa.
Safnkostur bókasafnsins er nú liðlega
120.000 rit og safnkostur Ljósmyndasafnsins um 140.000 myndir.
YFIRLIT:
BÓKASAFNIÐ:
Bæjar- og héraðsbókasafnið samanstendur af aðalsafninu á Ísafirði,
bókasöfnunum á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri auk bóka gömlu
lestrarfélaganna, sem eru enn á Hrafnseyri og Ástúni á Ingjaldssandi en bækur
lestrarfélaga Mosvallahrepps og Mýrahrepps eru í geymslum safnsins. Áður hafa
gengið inn í safnið á Ísafirði lestrarfélögin/bókasöfnin í Sléttuhreppi,
Grunnavíkurhreppi, Snæfjallahreppi og tvö í Eyrarhreppi (Lf. Skutulsfjarðar
og Bs. Hnífsdælinga). Lestrarfélag Ísfirðinga, sem var stofnað 20. janúar
1866, gekk inn í bókasafnið við stofnun þess 1889.
Bókasafnið starfar skv. lögum nr. 36/1997
ÚTLÁN:
Útlán bókasafnsins á Ísafirði á árinu voru 31.473 bindi (29.086 árið 2006) sem er um 8,2% aukning frá fyrra ári en
útlán hreppssafnanna sem sameinuðust Ísafjarðarbæ fækkaði nokkuð og eru
áætluð um 3.000 (4.500). Samtals voru útlánin 34.473 (33.586) á árinu.
Töluvert meira er um að notkun/lestur bóka og reyndar internetsins í safninu,
enda aðstaða nú mjög góð. Gera má ráð fyrir að innanhússnotkun sé a.m.k.
50% – þannig að heildarnotkun bóka
safnsins séu um 52.000 bindi á ári.
UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA:
Heimildaleitir nokkuð vaxandi, og eru áætlaðar um 2.300 og upplýsingabeiðnir
um 10.000 á árinu í aðalsafni.
SAFNGESTIR:
Áætlað er að gestafjöldi hafi verið heldur meiri en á fyrra ári eða um 40.000
gestir. Húsið var opið utan venjubundins afgreiðslutíma á sunnudögum í sumar
þegar skemmtiferðaskip voru í höfn.
SKRÁNING:
Unnið er að uppbyggingu tölvuskrár yfir allan safnkost (bækur, tímarit,
myndbönd, hljómdiska, snældur, kennsluáhöld o.fl.) í söfnum í bæjarfélaginu.
Skrár safnsins voru opnaðar á Internetinu haustið 1998 með vefbúnaði frá
MikroMARC: http://marc.isafjordur.is/mikromarc/ Safnkostur
bókasafnsins í Bolungarvík
var vistaður í gagnagrunni safnsins hér og opnað netaðgengi að honum á http://marc.isafjordur.is/bolungarvik/
SAFNKOSTUR:
Safnauki bókasafnsins á Ísafirði á árinu var -518 (-165 b.), en mikið af
slitnum bókum og aukaeintökum var afskrifað á árinu. Safnkosturinn nú um 76.500 bindi samkvæmt
aðfangaskrá. Utan aðfangaskrár eru um 6.000 bindi (þ.m.t. 2.500 bóka úr
lestrarfélögunum norðan Djúps), alls er safnkosturinn hér í aðalsafni því um
82.500 b. Bókakostur hreppssafnanna í V.Ís. sem sameinuðust er um 37.400
(37.300) - heildarsafnkosturinn er því um 120.000 bindi.
GAGNABANKAR:
Safnið er í samstarfi við önnur söfn og menntamálaráðuneytið til að opna
almenningi aðgang að erlendum gagnasöfnum án endurgjalds http://www.hvar.is/ Viðskiptavinir safnsins hafa aðgang að Internetinu í
aðalsafninu á 9 tölvum safnsins og þeir sem hafa eigin tölvur geta tengst
gegnum innanhússnet safnsins.
HÉRAÐSSKJALASAFNIÐ:
Unnið er að skráningu og pökkun skjalanna í sýrufríar umbúðir, jafnframt því
sem unnið er að söfnun skjala í héraðinu. Skjalasafnið hefur tilsjón með
skjalavistun og meðferð skjala Ísafjarðarbæjar m.a. í GoPro
skjalavistunarkerfinu. Skjalasafnið starfar skv. lögum nr. 66/1985
LJÓSMYNDASAFNIÐ
Á árinu voru töluvert vaxandi
umsvif á ljósmyndasafninu við afgreiðslu, afritanir, skráningu, frágang
ljósmynda, filma o.fl. Með stofnun safnsins aukast möguleikar þess á að afla
styrkja frá ýmsum sjóðum og ríki - til verkefna og jafnvel rekstrar í
framtíðinni. Úrval mynda safnsins
verður aðgengilegur á vefnum. http://myndasafn.isafjordur.is/
Á árinu bárust safninu
nokkrar myndagjafir. Safnkostinum hefur að mestu verið komið fyrir í
sýrufríum umbúðum í geymslum safnsins (alls nálægt 140.000 myndir).
GAMLA SJÚKRAHÚSIÐ
Skráðir gestir á sýningum
voru um 700 - sýningar og atburðir í húsinu voru:
Vestfirsk skáld – 6
húslestrar
Slátursýning
Þjóðbúningasýning
Með augum
fréttaljósmyndarans
Leikfangasýning
Dúkkulísusýning
Jólasýning
Vonir standa til þess að
framhald verði á frágangi kringum húsið og allt að sjúkrahússtúnið verði
skipulagt og byggt upp sem hátíða- og útivistarsvæði.
NÁNARI SUNDURLIÐUN
BÓKASAFNIÐ:
ÚTLÁN:
Á árinu voru heildarútlán bókasafnsins á Ísafirði 31.473 (29.086) bindi. Í aðalsafni voru útlánin 25.873 (22.886), en til stofnana,
hreppa o.fl. voru útlán um 5.600 (6.200) bindi. Útlán í hreppasöfnunum voru
áætluð 3.000 (4.500) bindi. Heildarútlán í Ísafjarðarbæ voru því 34.473
(33.586) bindi. Útlán á hvern íbúa bæjarins eru um 8 b./íb. Bent er á að
framangreindar útlánatölur eiga eingöngu við um rit sem eru lánuð út af
söfnunum - lán á lesstofu, leskróka, handbókalán, blaða- og tímaritalán
o.þ.h. eru ekki talin með en sú notkun hefur stóraukist með nýrri aðstöðu.
Ekki er talin afritun gagna s.s.ljósritun eða skönnun. Auk þessa hefur orðið
mikil aukning notkunar á Internettölvum í safninu, en þau not eru ekki mæld.
Miðað við erlend viðmið má gera ráð fyrir að heildarnotkun (útlán og
innanhússnotkun) á árinu 2006 hafi verið liðlega 52.000 bindi.
MILLISAFNALÁN:
Rit lánuð öðrum söfnum voru um 100, og rit fengin að láni voru 37. Hljóðbækur
(blindrabækur) fengnar að láni voru 140.
ÖNNUR ÚTLÁN:
Auk venjulegra útlána voru um 300 bækur sendar íbúum sýslunnar. Í stofnunum
voru lánaðar út um 4.600 bækur. Önnur útlán m.a. til skipa voru um 700. Alls
voru þessi útlán um 5.600.
SÖGUSTUNDIR:
Sögustundum fyrir ísl. börn var hætt um haustið 2005 og meiri áhersla lögð á
samstarf við leikskólana. En pólskar sögustundir voru 13 (19) og komu 56 (96)
börn.
SAFNKYNNING:
Safnkynningar voru fyrir
yngri bekki grunnskóla (Ísaf., Flat. og Suðureyri) voru 10 (3) og komu 151
(24) barn, fyrir leikskóla voru 39 (33) kynningar og komu 278 (312) börn,
fyrir Dægradvöl GÍ 8 (14) og komu 57 (123) börn. Á bangsadaginn komu 85 (100)
börn á skipulagða dagskrá. Flutningur á leikritinu Mæja spæja (samv. RÚV og
bókasafna) komu 40 börn og uppskeruhátíð sumarlesturs 50 gestir. Samtals komu
661 (835) gestir á þessa kynningaratburði.
PANTANIR:
Á árinu voru afgreiddar álíka margar pantanir á bókum (vegna lána) og áður
eða um 150.
LÁNÞEGAR:
Áætlað er að lánþegar sem
koma í safnið á Ísafirði að staðaldri séu um 800. Verð skírteina var 1600
kr., en börn á grunnskólaaldri fá fyrsta skírteini ókeypis.
SAFNGESTIR:
Áætlað er að a.m.k. 40.000
gestir hafi komið í safnið á Ísafirði á árinu, sem er veruleg auknin frá
fyrri árum.
SKRÁNING:
Bókasöfn í eftirtöldum sveitarfélögum í héraðinu hafa verið skráð að mestu í
tölvukerfi safnsins hér: Nauteyrarhr.(safnið er nú á Hólmavík),
Reykjarfjarðar-, Ögur- og Snæfjallahr., (söfnin eru nú í kössum í Súðavík),
Súðavíkurhr., Flateyrarhr., Mýrahr. (safnið er á Ingjaldssandi) og
Mosvallahrepps (í geymslum aðalsafns). Unnið er að því að skrá safnið á
Suðureyri (70%), og áætlað að skrá safnið á Þingeyri í kerfið á næstunni, eða
þegar safnið hefur verið endurskipulagt. Lokið er skráningi á öllum safnkosti
lestrarsals og útlánadeildar aðalsafnsins. Auk þessa er safnkostur
Grunnskólans á Ísafirði fullskráður.
SAFNKOSTUR:
Í árslok taldist safnkosturinn á Ísafirði um 76.500 en var (76.996) eintök í
ársbyrjun. Ný rit (aukning) voru 1.543 miðað við aukningu upp á (1.189)
eintök s.l. ár. Keypt voru 1.239 (1.113) rit, og bækur gefnar safninu voru
126, miðað við (76) s.l. ár.
Afskrifaðar voru 2.061 bók (1.354
s.l. ár). 52 (142) bækur voru bundnar inn. Heildarsafnkosturinn er um
82.500 bindi þar sem nokkuð er til af óskráðu efni. Safnkostur hreppssafnanna
er um 37.400. Bókakosturinn í heild er því um 120.000 bindi.
GAGNABANKAR:
Safnið hefur frá árinu 1992 haft tölvusamband við gangabanka innanlands og
erlendis og síðar á Internetinu. Nú hafa söfn landsins samið um aðgang að
helstu gagnagrunnum á landsvísu þannig að öll söfn fái aðgang að þeim
hindrunarlaust gegnum síðuna http://www.hvar.is/
Safnið hefur undanfarin 15
ár veitt lánþegum aðgang að Internetinu, fyrst með 1 vél á módemi en nú 9
vélar tengdar SDSL. Þannig hefur safnið beinan aðgang að nánast öllum
heimildum í söfnum innanlands og fjölda erlendis, gögnum sem hægt er að
útvega með skömmum fyrirvara með millisafnalánum, ljósritum, eða beint um
tölvusamband - þessi aðstaða gerir safninu kleift að veita sambærilega
þjónustu og hægt er að veita í stórum söfnum á höfuðborgarsvæðinu.
VEFUR:
Vefur safnanna er http://safn.isafjordur.is/ - og er unnið að því að koma meira efni á
vefinn. Bókasafnið hér er fyrsta
almenningsbókasafn landsins sem veitir aðgang að skrám sínum á vefnum http://marc.isafjordur.is/mikromarc/
STARFSLIÐ:
Að mestu óbreytt frá fyrra ári: Edda B. Kristmundsdóttir, bókasafnsfræðingur
(100%), Elín Magnfreðsdóttir, bókavörður (100%), Jóhann Hinriksson,
forstöðumaður (100%) og Helga Aspelund í 66% og Sigurlaug Bjarnadóttir í 33%
og bráðabyrgða hefur Hulda Bjarnadóttir hlaupið í skarðið (33%). Inga María
Guðmundsdóttir bókasafnsfræðingur í 50% stöðu. Jóna Símonía Bjarnadóttir sagnfræðingur starfar sem
skjalavörður (100%) við Héraðsskjalasafnið. Davíð Kristjánsson er bókavörður
á Þingeyri, en hann hefur jafnframt sinnt bókbandi fyrir safnið og Pétur
Þorkelsson er bókavörður á Flateyri og Marías Þórðarson á Suðureyri.
ÚTLÁNATÍMAR:
Útlánaafgreiðsla safnsins hefur verið opin 33 klst. á viku (virka daga kl. 13-19
og laugard. 13-16). Þjónusta utan venjulegs afgreiðslutíma hefur aukist
verulega undanfarið, mest gegnum síma og netpóst - upplýsingavakt gegnum síma
og tölvusamband er að jafnaði frá kl. 10 til 18. Einnig
var safnið opið utan venjulegs afgreiðslutíma sumarmánuðina þegar
skemmtiferðaskip vor í höfn. Hreppasöfnin
fyrrverandi á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri eru opin að jafnaði 2 klst. á
viku vetrarmánuðina.
STOFNANIR:
Þjónusta við stofnanir (þ.e. sjúkrahús, öldrunardeild, dvalarheimili (Hlíf),
skólaskrifstofa, dagheimili og hótelið) var með svipuðum hætti og undanfarið.
Farið er einu sinni í viku á sjúkrahúsið og Hlíf og afgreiðslu sinnt að
jafnaði 3-4 klst. í hvert skipti.
SKÓLAR:
Bókavörður Grunnskólans á Ísafirði skráir nú safnkost skólans beint í kerfi
safnsins, en skólinn hefur haft aðgang að bókasafnskerfinu nokkur undanfarin
ár þar sem útlán eru einnig skráð. Framhald var á safnkynningu fyrir nemendur
Grunnskólans í samvinnu við skólasafnvörð.
Safnið þjónar nemendum sem eru í fjarnámi með útvegun heimilda og
aðgengi að gagnabönkum og leiðbeiningum um notkun þeirra og veitir þeim
aðstöðu á safninu eftir því sem hægt er og standa vonir til þess að losa megi
pláss á 3ju hæð til nota fyrir fjarnema - amk fyrir þá sem eru í
framhaldsnámi í þeim greinum sem þurfa aðgang að bóka- skjala- og
myndasafninu. Bókasafnið hefur sinnt þörfum nemenda Menntaskólans fyrir
ítarefni (bækur / tímaritsgreinar o.fl.) eins og áður að verulegu leiti.
HREPPSBÓKASÖFN:
Samstarf við hreppasöfn í héraðinu eru skv. lögum – þetta samstarf var með
líku sniði og undanfarin ár. Eftir sameiningu sveitarfélagana er aðeins
Súðavík eftir. Bókakostur þessara hreppa er skráður að mestu leiti í tölvu
safnsins á Ísafirði - íbúar héraðsins hafa nú aðgang að skrám safnsins eins
og aðrir á Internetinu, sama gildir um bókasafnið í Bolungarvík þó það sé
ekki í formlegu sambandi.
HÉRAÐSSKJALASAFNIÐ:
Árið 2007 bárust safninu 26
(18) skjalaafhendingar og fyrirspurnir voru nokkru meiri en áður eða 40 auk
minniháttar fyrirspurna sem ekki þykir taka að bókfæra sem afgreiðslu. Þá
stóð safnið að jólasýningu á Gamla sjúkrahúsinu í samstarfi við bóka- og
byggðasafn eins og áður.
Unnið var áfram að söfnun
skjala og athugun á ástandi í skjalageymslum í héraðinu. Eins voru nokkrir
einstaklingar við fræðistörf á safninu til lengri eða skemmri tíma. Í árslok
2007 voru færslur í aðfangabók 3746 (3720). Safnið sinnti jafnframt ráðgjöf
og þjónustu við bæjarskrifstofur eins og áður.
LJÓSMYNDASAFNIÐ:
Safninu bárust um 5 (6)
einkamyndasöfn, þ.á.m. filmur frá Jóni Páli Halldósrssyni af myndum sem voru
á sýningu hans hér í apríl. Á árinu 2007 fékk safnið uþb 90 fyrirspurnir auk
þess sem safnið útvegaði myndir í ýmsar útgáfur á árinu, sem er öllu meira en
árið áður. Í safninu eru nú liðlega 140.000 filmur og ljósmyndir. Úrval úr
safninu hefur verið gert aðgengilegt á vefnum http://myndasafn.isafjordur.is/
Áætlað er að flytja myndiefni
(sérstaklega gamlar pappírsmyndir) yfir á þennan grunn eftir því sem mannafli
leyfir, en skönnun mynda er nokkuð tímafrek vinna. Sótt hefur verið um
rekstrarstyrk úr Safnasjóði til verksins en ekkert fengist umfram lága
verkefnastyrki. Safnið fékk 1.000.000 styrk úr Þjóðhátíðarsjóði til að afrita
elsta hluta myndasafnsins.
STJÓRN:
Menningarmálanefnd
Ísafjarðarbæjar fer með málefni safnanna.
Í Menningarmálanefnd
Ísafjarðarbæjar eiga nú sæti:
Ingi Þór Ágústsson,
formaður, Hrannargötu 3, Ísafirði
Inga Ólafsdóttir, Hafnarstræti
7 Ísafirði
Anna Sigríður Ólafsdóttir, Heimabæ 2 Ísafirði
14. apríl 2008
Jóhann Hinriksson
|